Beint á leiðarkerfi vefsins

Kaizen: Umbætur þar sem starfsmenn finna bestu lausn

Í straumlínustjórnun skipta starfsmenn og kúltúr afskaplega miklu máli. Starfsmenn vinna í teymum til þess að koma með hugmyndir að verkefnum og við að leysa verkefni. Kaizen er í raun eitt af þeim tólum sem hægt er að nota við að leysa og stjórna  verkefnum.  Í hefðbundnum 5 daga kaizenum er unnið í hópum frá 5-10 manns. Mikilvægt er að teymið sé fjölbreytt og að starfsmenn sem vinna við vandamálið séu í teyminu. Undirbúningur, skipulagning og þjálfun getur tekið allt að 3 vikum, sjálfur atburðurinn er svo í nokkra daga. Eftir atburðinn tekur svo við 30 daga vikuleg eftirfylgni og svo mánaðarleg eftirfylgni eftir það. Það skiptir gríðarlega miklu máli hvernig kaizen stjórnandinn er og hvernig hann nær að virkja fólkið til þess að ná hámarks árangri.


Skráning
mannvit
verkis

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English