Beint á leiðarkerfi vefsins

William Duncan

william duncanWilliam R. Duncan er forstöðumaður bandaríska ráðgjafar- og þjálfunarfyrirtækisins Project Management Partners í Lexington, Massachusetts. Hann er jafnframt stjórnarformaður PMCert, sem er vottunaraðili á vegum bandarísku verkefnastjórnunarsamtakanna (American Society for Advancement of Project Management), og var áður staðlastjóri bæði þeirra samtaka og Project Management Institute, Inc. Þá hefur hann verið leiddur sem sérfræðivitni um réttar aðferðir við verkefnastjórnun.
Duncan hefur meira en 30 ára reynslu af verkefnastjórnun, hefur unnið í þágu fjölda fyrirtækja, bæði í Bandaríkjunum og víða um heim, og þróað ýmiss námskeið í faginu. Hann hefur lagt fram efni á fjölmörgum ráðstefnum, birt yfir 40 greinar í sérfræðiritum og var aðalhöfundur frumútgáfunnar (1996) af A Guide to the Project Management Body of Knowledge sem nú er mest notaða handbók í heimi á sínu sviði. Hann var einn af stofnendum samtakanna Global Alliance for Project Performance Standards (GAPPS) og starfar fyrir þau sem sjálfboðaliði.
William R. Duncan lauk fyrst háskólanámi 1970 frá Brown University í Providence, Rhode Island. Framhaldsnám stundaði hann í Boston við Boston University og Northeastern University.
Skráning
mannvit
verkis

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English