Beint á leiðarkerfi vefsins

Rafn Kjartansson

Rafn Kjartansson 
Menntun:
MA (Hons.) í ensku og bókmenntum frá Háskólanum í Edinburgh Diploma í ESL frá Háskólanum í Leeds M.Ed. frá Háskólanum í Manchester

Frá 1968-2000 kenndi Rafn ensku, íslensku og þýsku við Menntaskólann á Akureyri. Frá 1987-2007 var Rafn lektor við Háskólann á Akureyri þar sem hann lagði áherslu á viðskiptaensku ásamt aðferðafræði við enskukennslu og fjölmenningarleg samskipti.

Rafn hefur 30 ára reynslu í þýðingum úr ensku á íslensku og íslensku á ensku, og hefur fengist við þýðingar á efni af ýmsum toga t.d. vísindum, bókmenntum, viðskiptum, lögfræði, ferðaþjónustu og stjórnsýslu. Einnig hefur Rafn unnið þýðingar úr dönsku, norsku, sænsku, og þýsku yfir á ensku og íslensku.

Rafn hefur sérhæft sig í rannsóknum á fjölmenningarlegum samskiptum, komið að evrópskum verkefnum þeim tengdum sem bæði þátttakandi og stjórnandi.
Rafn er einn höfunda CEReS, sem tekur á fjölmenningarlegum samskiptum fyrir viðskiptadeildir háskóla, og var útgefið árið 2006.


Skráning
mannvit
verkis

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English