Beint á leiðarkerfi vefsins

Ólafur Loftsson

Ólafur LoftssonÓlafur Loftsson er einn af stjórnendum Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar (ICE-SAR) og hefur verið virkur í starfi með henni síðan 2009. Þá er hann einnig UNDAC liði (Unated Nations Disaster Assessment and Coordination). UNDAC liðar eru aðgerðarstjórnendur sem eru á útkallsskrá á vegum Sameinuðu þjóðanna og eru tilnefndir af löndum og/eða félagasamtökum til þátttöku í mati og samræmingu í hamförum úti um allan heim. Hann var annar af stjórnendum ICE-SAR á Haiti og var á Filipseyjum í október s.l. sem UNDAC liði að fást við afleiðingar fellibylja.

Ólafur hefur starfað með Hjálparsveit skáta í Reykjavík frá 18 ára aldri. Hann hefur tekið virkan þátt í starfi sveitarinnar frá þeim tíma með hléi þó til að sinna fjölskyldu sinni. Hann hefur tekið virkan þátt í öllu starfi Hjálparsveitarinnar og m.a. sinnt leit og björgun um árabil.
Ólafur hefur verið í Svæðisstjórn björgunarsveita á svæði 1, höfuðborgarsvæðinu.
Ólafur hefur lært samningatækni og kennslu í henni á vegum Harvard og MIT. Hann er menntaður grunnskólakennari og hefur einnig lært rekstrar- og viðskiptafræði. Hann er formaður Félags grunnskólakennara og starfar sem slíkur. Hann er giftur og á þrjú börn.


Skráning
mannvit
verkis

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English