Beint á leiðarkerfi vefsins

Miles Shepherd

Miles ShepherdMiles Shepherd er með rúmlega 30 ára reynslu í verkefnastjórnun og verkferlastjórnun sem hann hefur öðlast við þátttöku í stjórnskipulegu og alþjóðlegu umhverfi á sviði varnarmála, upplýsingatækni, kjarnorkuverkfræði, samgangna, staðla þróun og gæðastjórnun. Hann hefur leitt verkefni fyrir Breska ríkið, Breska herinn, her Taívana og framkvæmdastjórn ESB. Sérfræðiþekking hans er meðal annars tilkomin vegna þátttöku í ýmsum verkefnum svo sem lokun kjarnorkuvera í Bretlandi og Austur-Evrópu. Hann hefur tekið að sér verkefni er varða öryggi járnbrautakerfa, viðskiptaþróun, verkefni fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er miða að styrkingu á faggildingu ríkisstjórna í Austur-Evrópu, og þróun á meistaranámi í verkefnastjórnun í Bandaríkjunum, Bretlandi, Taívan og Rúmeníu.

Hann er varaforseti og fyrrum forseti APM (Association for Project Management) og jafnframt stjórnarformaður og fyrrum framkvæmdastjóri IPMA (International Project Management Association). Síðan 1990, hefur Miles hefur verið fyrirlesari á alþjóðlegum verkefnastjórnunar ráðstefnum og fundum í Austurríki, Belgíu, Bretlandi, Kanada, Kína, Þýskalandi, Ungverjalandi, Íslandi, Indlandi, Írlandi, Ítalíu, Noregi, Rússlandi, Svíþjóð og Úkraínu.

Hann hefur mikla reynslu á sviði innlendra og alþjóðlegra staðla og er meðlimur í verkefnastjórnunarráði BSI (Staðlaráð Bretlands) auk ýmissa vinnuhópa er koma að kerfisverkfræði. Hann leiðir verkefnahóp TC 236 á vegum ISO (Alþjóðlegu Staðlasamtökunum) sem vinnur að því að þróa nýjan alþjóðlegan staðal í verkefnastjórnun.

Miles er auk þess stundakennari og rannsóknarleiðbeinandi við Opna Háskólann í Bretlandi, Háskólann í Manchester, Háskólann í Bournemouth og með heiðursstöðu við UCL (University College í London), hann er einnig stofnandi og starfandi stjórnarmaður í stjórn rannsóknarstofu IPMA á stjórnun. Hann er framkvæmdastjóri MS Projects, Ltd, sem veitir ráðgjöf á sviði verkefnastjórnun, gæðastjórnun, endurskoðun og fræðilegs þróunarstarfs, hann hefur réttindi til úttektar samkvæmt ISO og starfar sem framkvæmdastjóri fyrir Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku hjá Business Development Institute International. Miles er með BS próf í kerfisverkfræði, meistaranáms skírteini í stefnumótun á upplýsingatæknisviði og verkefnastjórnun ásamt ýmsum stjórnvalds og iðnaðar skírteinum. Hann er alþjóðlegur ráðgjafi og talsmaður fyrir http://www.pmforum.org/.


Skráning
mannvit
verkis

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English