Beint á leiðarkerfi vefsins

David Lynch

david betterDavid Lynch hefur allt frá 1993 verið virkur í hjálparstarfi Rauða krossins og það á hinum ólíkustu stöðum: Papúa Nýju-Gíneu, Norður- og Suður-Kákasus, Indónesíu, Ísrael og hernáms- og sjálfstjórnarsvæðum Palestínu.
David hefur gegnt störfum í aðalstöðvum Rauða krossins (Alþjóðanefndar Rauða krossins, ICRC, og Alþjóðasambands rauðakross- og rauðahálfmána-félaga, IFRC) í Genf, sömuleiðis á landsskrifstofu íslenska Rauða krossins í Reykjavík.
David hefur verið virkur í stjórnkerfi og starfshópum rauðakrosshreyfingarinnar og tekið þátt í innlendri neyðarhjálp Rauða krossins á Íslandi. Hann hefur fengið foringjaþjálfun fyrir FACT-teymi (field assessment and coordination team), er í viðbragðsliði fyrir Alþjóðanefnd Rauða krossins og var fyrir skemmstu stjórnandi (Sector Team Leader) í uppbyggingarteymi Alþjóðasambands rauðakrossfélaga á Haítí.
David Lynch hefur lokið MPM-námi í verkefnastjórnun (Project Management) við verkfræðideild Háskóla Íslands.
Skráning
mannvit
verkis

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English