Ráðstefnustjórar
Andrea Þ. Rafnar
Andrea Rafnar viðskiptafræðingur og MPM er framkvæmdastjóri gæða- og öryggismála hjá Gagnavörslunni ehf. Áður en hún hóf störf hjá Gagnavörslunni var hún sjálfstætt starfandi verkefnastjóri. Á árunum 1993 til 2005 var Andrea forstöðumaður hjá Íslandsbanka m.a. á sviði vöruþróunar, markaðs- og gæðamála svo og verkefnastjórnunar.
Andrea hefur setið í ýmsum stjórnum og ráðum í gegnum tíðina þar má meðal annars nefna stjórn Europay, verkefnisstjórn “Auðar í krafti kvenna” , stjórn Gæðastjórnunarfélagsins og Ímark auk þess sem hún var fyrsti formaður stjórnar MPM félagsins.
Steinunn Halldórsdóttir
Steinunn Halldórsdóttir, stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur er verkefnisstjóri á skrifstofu ráðherra i í Félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Þar vinnur hún m.a. að undirbúningi að sameiningu stofnana. Steinunn stýrði verkefnisstjórn um sameiningu Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands árin 2007 og 2008 í umboði rektora skólanna. Áður starfaði hún í 7 ár sem sérfræðingur hjá Ríkisendurskoðun við gerð stjórnsýsluúttekta.
Steinunn útskrifaðist með EMPA gráðu í opinberri stjórnsýslu frá háskólanum í Leuven í Belgíu og háskólanum í Leiden í Hollandi árið 1994. Jafnframt er hún er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.












