Þorvaldur Örn Arnarson
Þorvaldur Örn Arnarson er tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Skövde, Svíþjóð, 1997. Hann hefur unnið við hugbúnaðargerð og samþættingu hugbúnaðarlausna í 12 ár, fyrst sem forritari en undanfarin 7 ár sem verkefnastjóri. Þorvaldur útskrifaðist úr meistaranámi í verkefnastjórnun (MPM) frá Háskóla Íslands vorið 2009. Hann starfar hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Libra ehf. sem sérhæfir sig í lausnum fyrir fjármálafyrirtæki.
Erindi Þorvaldar fjallaði um bakland verkefna og hvernig er hægt að tryggja og mæla hvort nægjanlegur stuðningur sé í verkefninu? Hvernig fáum við ábyrgðaraðila til að skilja hver þeirra ábyrgð er og veita verkefninu brautargengi? Erindið byggir á módeli sem að hann vann í MPM námi sínu við Háskóla Íslands. Hann hefur haldið áfram að þróa módelið og er von á því að umfjöllun um það birtist í erlendum fagtímaritum um verkefnastjórnun.












