Sigurður Ragnar Eyjólfsson
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir frábæran árangur með þjálfun A-landsliðs kvenna frá því hann tók við þjálfun liðsins, 1. janúar 2007. Hann er íþróttafræðingur að mennt, með Mastersgráðu í æfinga- og íþróttasálfræði frá Greensboro háskóla í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum ásamt UEFA-Pro þjálfaragráðu. Sigurður Ragnar er annar Íslendingurinn sem útskrifast með þessa gráðu en fyrstur var Teitur Þórðarson.
Hann starfaði sem fræðslustjóri KSÍ frá 2002 en eitt af hans aðal hlutverkum í því starfi hefur verið að byggja upp þjálfaramenntun á Íslandi fyrir hönd KSÍ. Sigurður hefur leikið knattspyrnu erlendis sem atvinnumaður, m.a. með Walsall í 1. og 2. deild í Englandi og svo með Harelbeke í úrvalsdeildinni í Belgíu. Hann á einnig farsælan feril að baki sem leikmaður á Íslandi og varð m.a. Íslandsmeistari með KR árin 2002 og 2003, en hefur einnig leikið með Þrótti R., Víkingi R. og ÍA.
Þá hefur Sigurður Ragnar starfað sem fræðslustjóri KSÍ síðan í febrúar 2002, en eitt af hans aðalhlutverkum í því starfi hefur verið að byggja upp þjálfaramenntun á Íslandi fyrir hönd KSÍ.
Erindi Sigurðar fjallaði um liðsheild. Sigurður var nýkominn heim með lið sitt frá EM í Finnlandi. Hann kynnti á áhrifaríkan hátt aðferðir til að halda teymi saman í gegnum súrt og sætt. Erindi Siguraðar vakti sérstaka lukku á ráðstefnunni.












