Ralph G. Musick Jr.
Ralph Musick starfar sem verkefnisstjóri hjá HRV Engineering í Reykjavík og leiðir fyrir þeirra hönd stækkunarverkefni fyrir ÍSAL í Straumsvík. Hann hefur búið á Íslandi undanfarin þrjú ár en hann kom hingað til lands fyrst í tengslum við byggingu álversins á Reyðarfirði þar sem hann gengdi stöðu svæðisstjóra fyrir Bechtel.
Ralph útskrifaðist með láði frá University of Colorado með BSc. gráðu í iðnaðarverkfræði og er um þessar mundir að ljúka meistaragráðu í námuverkfræði frá Missouri University of Science and Technology. Ralph hefur verið vottaður PMI verkefnastjóri frá árinu 1994.
Ralph hefur 30 ára reynslu í stýringu framkvæmda og verkfræðiverkefna. Hann hefur sinnt stöðum verkefnastjóra, rekstrarstjóra og yfirverkefnastjóra hjá nokkrum af heimsins stærstu verkfræði- og byggingarfyrirtækjum og unnið í verkefnum tengdum námu-, málm- og kjarnorkugeirunum.
Erindi Ralph fjallaði um áætlanagerð í verkefnum og hvernig verkefnastjórinn vinnur með áætlanagerð þegar að breytingar verða á verkefninu, innviðum þess eða umhverfi.












