Jerry Manas
Jerry Manas er forstjóri Marengo Group, eftirsóttur fyrirlesari, ráðgjafi og höfundur bókanna Managing the Gray Areas (RMC Publications, janúar 2008) og Napoleon on Project Management (Nelson Business, apríl 2006). Hann er einn af stofnendum bloggsíðunnar PMThink og stofnfélagi The Creating We Institute sem er suðupottur fróðleiks fyrir leiðtoga sem leggja áherslu á teymisvinnu.
Sem ráðgjafi sérhæfir Jerry sig í verkefnastjórnun og dýnamík hópa og teymisvinnu. Hans ástríða er fólgin í því að hjálpa leiðtogum að skapa sveigjanleg en sterk teymi. Meðal verkefna sem hann og samstarfsfélagar hans hjá Marengo Group taka sér fyrir hendur er að lóðsa innleiðingu hugmyndanna og aðferðanna sem hann lýsir í bókum sínum. Kenningar hans um þjónustumiðaða verkefnastjórnun settar fram í módelinu "Service Oriented Project Managment (SOPM) hafa verið viðurkenndar sem frumlegar og til þess fallnar að ýta undir nýja hugsun þar sem viðskiptavinurinn er þungamiðjan í verkefninu. Jerry hefur einnig stýrt stórum verkefnum, m.a. í Evrópu, Asíu, Suður-Ameríku og Bandaríkjunum.
Vitnað hefur verið í verk hans víða, m.a. af stjórnunargúrúnum Tom Peters og í ýmsum fræðiritum og tímaritum, Leadership Excellence, The National Post, The Globe and Mail, The Chicago Sun Times og The Houston Chronicle. Hann hefur skrifað fjölda greina og komið fram í útvarpi. Bók hans Napoleon on Project management hefur verið kölluð „The ultimate case study in effective project management."
Jerry er óendanlega forvitinn að eðlisfari og hefur gaman af því að grúska í sögu, ýmsum vísindagreinum, heimspeki og fleiri ólíkum fræðum og draga dæmisögur hans oft dám af þessum áhuga. Hann hefur lag á að setja verkefnastjórnun í óvænt samhengi sem varpar skemmtilegu ljósi á fræðigreinina. Hann gengur út frá því í öllum sínum verkum að lykill að árangri sterks og viturs leiðtoga byggi einkum á einfaldleika, virkri þátttöku og trausti óháð því sem hann tekur sér fyrir hendur
Jerry er virkur sjálfboðaliði hjá Bandarísku Verkefnastjórnunarsamtökunum (Project Management Institute (PMI) og situr í ýmsum nefndum og stjórnum á vegum þeirra. Hann hefur lagt til vinnu við útgáfu ýmissa staðla á vegum samtakanna, þar á meðal „Organizational Project Management Maturity Model (OPM3)" staðla fyrir stýringu verkefnaskráa og verkefnastofna (e. Program and Portfolio Management), þar sem hann stýrði yfir 400 manna teymi við gerð staðlanna.
Jerry opnaði ráðstefnuna og hans erindi fjallaði um erindi hvernig við leiðum verkefnin okkar á tímum krísu og notaði til þess samlíkingu við Napoleon Bonaparte. Jerry var heillaður af landi og þjóð og þótti mikið til íslenskrar Nýsköpunar koma. Hver veit nema Jerry, sem hefur gaman af því að setja fagið í samhengi við sögu, skrifi bók um hvernig Bjartur í Sumarhúsum tókst á við sín verkefni.












