Hilmar Veigar Pétursson
Hilmar Veigar Pétursson hefur starfað sem framkvæmdastjóri CCP frá 2004 og hefur alla tíð síðan leitt fyrirtækið í gegnum viðvarandi velgengni og gríðarlegan vöxt. Meðal verkefna sem hann hefur tekist á við eru umtalsverð stækkun reksturs fyrirtækisins í Shanghai, Kína og samruna við White Wolf Publishing í Atlanta árið 2006. Hilmar hefur tryggt sess CCP sem leiðandi afls á tölvuleikjamarkaði og er þekktur sem frumkvöðull í þróun sýndarveruleika, útgáfu sýndarveruleikaleikja og þróun tækninnar á bak við slíka leiki. Hann var nefndur einn af 20 áhrifamestu mönnum á sviði nettölvuleikja (e. MMO Industry) árin 2007 og 2008 af Beckett Massive Onliner Gamer Magazine. Hilmar er eftirsóttur fyrirlesari og hefur m.a. talað á Edinburgh Interactive Festival, Nordic Game Conference og the Austin Game Developer's Conference.
Hilmar gekk til liðs við CCP árið 2000 sem yfirmaður tæknimála (CTO) og leiddi verkefnið EVE Online sem leit dagsins ljós árið 2003. Áður starfaði Hilmar hjá SmartVR og OZ. Hann tekur virkan þátt í mótun vaxtar íslensks hugvits með setu í ýmsum stjórnum og ráðum sem tengjast upplýsingatækni og frumkvöðlastarfsemi henni tengdri. Hilmar er tölvunarfræðingur B. Sc frá Háskóla Íslands.
Erindi Hilmars fjallaði um hvernig það ástand sem íslenska þjóðin bjó við haustið 2009 hafði áhrif á fyrirtæki eins og CCP. Hvernig leið starfsfólki í breytingum - hvaða áhrif hafði ógn viðskiptaumhverfisins á starfsfólk?












