Beint á leiðarkerfi vefsins

Hildur Helgadóttir

Hildur Helgadóttir

Hildur Helgadóttir er hjúkrunarfræðingur sem hefur lokið meistaraprófi í verkefnastjórnun frá verkfræðideild HÍ í júní 2007, meistaraprófi í hjúkrunarfræði frá háskólanum í Calgary 1989 og B.Sc. gráðu í hjúkrunarfræði frá HÍ 1985. Hildur hefur unnið við klíníska hjúkrun og stjórnun á ýmsum heilbrigðisstofnunum ásamt því að sinna kennslu í sínu fagi. 

Vorið 1998 fór Hildur á vegum íslensku friðargæslunnar á Balkanskaga og starfaði sem hjúkrunarfræðingur á herspítala á vegum breska hersins á í Bosníu. Um þá reynslu skrifaði hún bókina „Í felulitum - við friðargæslu í Bosníu með breska hernum" sem kom út árið 2007.

Hildur starfar nú sem innlagnastjóri Landspítala þar sem hún stýrir og tekur þátt í stórum og smáum verkefnum sem lúta að flæði sjúklinga, styttingu legutíma og aukinni skilvirkni klínískrar starfsemi. Hildur hefur sérfræðileyfi í lyflækningahjúkrun og er vottaður verkefnastjóri (Certified Project Manager).

Erindi Hildar fjallaði um siðferði verkefnastjórans en erindi hennar var byggt á rannsókn sem hún vann í MPM námi Háskóla Íslands og grein sem hefur m.a. birst í International Journal of Project Managment.


Skráning
mannvit
verkis

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English