Dr. Darren Dalcher
Dr. Darren Dalcher er stofnandi og framkvæmdastjóri the National Centre for Project Management í Englandi og prófessor í verkefnastjórnun hugbúnaðarverkefna við Middlesex háskóla í Englandi ásamt því að stýra rannsóknarstöð á þeim sviðum við skólann. Hann er einnig gestaprófessor við tölvunarfræðiskor Háskóla Íslands.
Dr. Darren Dalcher hefur fengið viðurkenningu frá bresku verkefnastjórnunarsamtökunum (the Association for Project Management APM) sem einn af 10 áhrifamestu manna á sviði verkefnastjórnunar. Hann hefur verið kosinn Fræðimaður ársins af Project Magazine fyrir framlag sitt til fræðigreinarinnar og hvernig hann tvinnar saman akademískri vinnu og praktík.
Eftir að hafa öðlast umtalsverða reynslu í að stýra hugbúnaðarverkefnum lauk hann PhD prófi í hugbúnaðarverkfræði frá King's College í London. Árið 1992 stofnaði hann Forensics Working Group of the IEEE Technical Committee on the Engineering of Computer-Based Systems, sem er alþjóðlegur hópur fræðimanna og þáttakanda úr atvinnulífinu sem fjallar um og mótar sérfræðiþekkingu á því af hverju verkefni og kerfi ná ekki tilsettum árangri og markmiðum og hvernig má snúa vörn í sókn. Darren hefur leitt rannsóknarstarf hópsins frá upphafi.
Darren Dalcher tekur virkan þátt ýmsum alþjóðlegum ráðum, stýrihópum og ritstjórnum. Hann kemur að skipulagningu margra alþjóðlegra ráðstefna og kemur fram sem lykilfyrirlesari eða stýrir vinnustofum. Hann hefur ritað meira en 150 greinar og bókarkafla um verkefnastjórnun og hugbúnaðarverkfræði. Hann er aðalritstjóri tímaritsins Software Process Improvement and Practice og faglegur ritstjóri tímaritsins Technology Analysis and Strategic Management.
Meðal sviða sem að Dr. Dalcher leggur áherslu á í rannsóknum sínum má nefna: árangur og mistök í verkefnum, geta og hæfni í verkefnastjórnun, agile, extreme og straumlínustjórnun verkefna, viðmið í verkefnastjórnun (e. Benchmarking), óvissustjórnun verkefna, ákvarðanataka, þekkingarstjórnun, siðferði verkefna og ábyrgð stjórnenda, kaótík og flækjustig, leiðtogahæfni í verkefnum og breytingastjórnun.
Darren lokaði ráðstefnunni og leiddi áheyrendur í gegnum völundarhús ákvarðanatöku. Hvernig tökum við ákvarðanir og út frá hvaða forsendum? Darren fékk áheyrendur til liðs við sig og sýndi á áhrifaríkan hátt hvernig við tökum afstöðu og ákvarðanir oft út frá takmörkuðum forsendum.












