Beint á leiðarkerfi vefsins

Dagur B. Eggertsson

Dagur Bergþóruson Eggertsson læknir er oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn og varaformaður Samfylkingarinnar. Hann gegndi embætti borgarstjóra í Reykjavík í hundrað daga, frá október 2007 til janúar 2008. Dagur hefur setið í borgarstjórn Reykjavíkur frá árinu 2002, 2002-2006 fyrir Reykjavíkurlistann en síðan fyrir Samfylkinguna. Hann skrifaði ævisögu Steingríms Hermannssonar, fyrrverandi forsætisráðherra Íslands. Hún kom út í þremur bindum á árunum 1998-2000.

Í störfum sínum fyrir Reykjavíkurborg hefur hann meðal annars sitið sem formaður skipulagsráðs.

Dagur ætlaði að fjalla um hvaða áhrif breytingar á fjármagni hafa á verkefni. Hvernig getum við brugðist við hækkandi gengi, aukinni óvissu með fjármögnun og þar með breyttum forsendum verkefnisins? Dagur var viðriðinn skipulagsverkefni Reykjavíkurborgar um nokkurt skeið og á herðum borgarinnar situr nú eitt af stóru verkefnum Íslandssögunnar, tónlistarhúsið. Dagur tók hins vegar pólítískan snúning á sitt umfjöllunarefni og fjallaði um áhrif pólitíkur á val verkefna og ákvarðanatöku.


Skráning
mannvit
verkis

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English