Ásbjörg Kristinsdóttir
Ásbjörg Kristinsdóttir stundar nú doktorsnám í verk- og viðskiptafræðideildum Massachusetts Institute of Technology (MIT), í Cambridge USA. Hún útskrifaðist með BSc. gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2002, MSc í byggingaverkfræði með áherslu á framkvæmdastjórnun frá MIT árið 2008 og MBA frá MIT Sloan School of Management sama ár.
Ásbjörg starfaði hjá Landsvirkjun frá 2002 til 2006, við undirbúning og framkvæmd vatnsafls- og jarðvarmavirkjana, einkum í verkefnastjórn Kárahnjúkavirkjunar. Þá sat hún í stjórn Verkefnastjórnunarfélags Íslands árin 2005 til 2006.
Doktorsverkefni Ásbjargar fjallar um greiningu á áhættum sem eru innifaldar í verkefnum við útrás orkufyrirtækja og miðar að því að finna leiðir fyrir fyrirtækin til að greina milli valkosta byggt á verkefnaáhættunni með tilliti til áhættuþols fyrirtækjanna.
Erindi Ásbjargar fjallaði um áhættur og afleiður. Hvernig getur verkefnisstjórinn tryggt sig gegn því að áhættuatvik verði ekki eða tækifæri verði nýtt?












