Verkefnastjórnun á tímum breytinga 2009
Ráðstefnan var haldin þann 24. september 2009 í samvinnu við MPM félagið. Félögin nutu jafnframt dyggs stuðnings Verkfræðideildar Háskóla Íslands. Viðfangsefnið var verkefnastjórnun á tímum breytinga. Ráðstefnan var haldin á Hilton Hótel Nordica frá kl 12:30 til 17:00 og lauk með veglegum 25 ára afmæliskokteil í boði VSF. Um 200 manns sóttu ráðstefnuna sem þótti lukkast afbragðs vel.
Ráðstefnunni var skipt upp í tvo strauma, í öðrum straumnum var lögð áhersla á aðferðir, ferla, tæki og tól sem verkefnastjórinn getur nýtt sér á tímum breytinga og í hinum var fjallað um áhrif breytinga á fólk, verkefnastjórann, verkefnisteymin og aðra hagsmunaaðila verkefna.
Lykilfyrirlesarar á ráðstefnunni voru Jerry Manas, höfundur bókanna Managing the Grey Areas og Napoleon on Project Management og Dr. Darren Dalcher. Aðrir fyrirlesarar voru víðsvegar úr íslensku atvinnulífi, verkefnastjórar og aðrir hagsmunaaðilar. Ráðstefnustjórar voru þær Andrea Þorbjörg Rafnar og Steinunn Halldórsdóttir.
Umfjöllunarefnin voru ólík, í straumnum Fólk og breytingar var fjallað um siðferði, liðsheild, áhrif breytinga á starfsfólk og hvernig hægt er að leiða verkefni áfram á óvissutímum. Í straumnum Tæki og tól var fjallað um bakland verkefna, áætlanagerð, fjármögnun og áhættustýringu verkefna ásamt því að farið var í æfingar um völundarhús ákvarðanatöku.












