Beint á leiðarkerfi vefsins

Thomas Rieckmann

Thomas Rieckmann lauk prófi í efnaverkfræði og hóf starfsferil sinn sem aðjúnkt við tækniháskólann í Clausthal í Þýskalandi. Í doktorsnámi sínu vann hann við að draga úr sóti í útblæstri díselvéla með hvarfasíun. Árið 1993 gekk hann til liðs við alþjóðlega verkfræðifyrirtækið John Brown.

Thomas Rieckmann hefur starfað sem iðnaðarverkfræðingur við hönnun fjölþéttibúnaðar. Sem yfirmaður rannsókna og þróunar var hann m.a. ábyrgur fyrir þróun ferla fyrir endurnýtingu og vinnslu pólýetýlentereþalats, PET. Um þetta leyti kynntist hann kostnaðarstýringu sem fræði- og starfsgrein, og kynntist m.a. kröfum markaðarins um sk. faglegt „guestimate“ (guess/estimate) á fastakostnaði við fjárfestingar og rekstur.

Í dag er Thomas Rieckmann prófessor við háskóla hagnýtra fræða í Köln í Þýskalandi (Fachhochschule Köln) þar sem hann kennir við iðnaðarverkfræðideild skólans. Rannsóknir og áhugasvið hans leggja áherslu á ferlisþróun, hönnun efnahvarfa, hönnun fjölliða og ekki síst kostnaðarstýringu. Thomas Rieckmann er einnig sjálfstætt starfandi ráðgjafi á sviði efnaverkfræði og býður upp á ráðgjöf ásamt fjölbreyttum námskeiðum á þessu sviði.


Skráning
mannvit
verkis

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English