Beint á leiðarkerfi vefsins

Ko de Bouvrie

Ko des Bouvrie er yfirmaður tæknideildar hollenska fyrirtækisins Cost Engineering B.V. Hann hefur meira en 20 ára reynslu af ráðgjöf á sviði kostnaðarstýringar í afar fjölbreyttum verkefnum. Hér má sem dæmi nefna verkefni í olíu-, gas- og námuvinnslu, efnaiðnaði, byggingarframkvæmdir, lyfjaframleiðslu, opinbera stjórnsýslu og stóriðju.Ko hóf starfsferill sinn hjá verkfræðifyrirtækinu Badger Engineering. Hann  vann síðar hjá ráðgjafafyrirtækinu AMEC í verkefnum fyrir ýmsa stóra viðskiptavini s.s. Shell, The Hague, DSM Delft og NAM, með áherslu á kostnaðarstýringu. Hann hefur einnig komið að kostnaðarstýringu í viðhaldsverkefnum og ýmsum úrskurðarmálum. Frá árinu 1992 hefur Ko verið aðili að NAP/DACE. Hann er einnig meðlimur í AACEI, AcostE og fjölmörgum sérhæfðum samtökum á sviði kostnaðarstýringar. Ko des Bouvrie kennir kostnaðarstýringu við Cost Engineering Academy og hefur haldið erindi á ótal ráðstefnum um efnið. Hann er heiðursfélagi í DACE og handhafi heiðursverðlauna Alþjóðlega kostnaðarstýringarráðsins (ICEC) fyrir Evrópu og Miðausturlönd.Cost Engineering B.V. var stofnað árið 1996 sem óháð ráðgjafarfyrirtæki á sviði kostnaðarstýringar. Þjónusta fyrirtækisins felur í sér nýstárlega samþættingu tæknilegrar ráðgjafar og aðferðafræði kostnaðarstýringar. Dæmi um verkefni sem Ko des Bouvrie og teymi hans hafa stjórnað er eignamat fyrir stóra olíuhreinsunarstöð sem var byggð á 6. áratugnum, en er nú nú metin á 9 milljarða evra. Ko hefur einnig verið ábyrgur fyrir ýmis kostnaðarverkefni að stærðargráðunni frá milljónum upp í ríflega milljarð evra í samstarfi við fjölmörg verkfræðifyrirtæki.Fyrirtæki Ko des Bouvrie starfrækir Cost Engineering Academy sem býður upp á nám og þjálfun fyrir sérfræðinga í kostnaðarmati, kostnaðarstýringu og kostnaðaráætlunum. Cost Engineering B.V. hefur einnig þróað eigin hugbúnaðarkerfi til kostnaðarmats sem nefnist Cleopatra Enterprice. Þess má geta að Cleopatra Enterprice er í dag notað í fyrirtækjum um allan heim.
Skráning
mannvit
verkis

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English