Jón Þór Gunnarsson
Jón Þór Gunnarsson hefur lokið meistaraprófi frá Tækniháskóla Danmerkur (DTU) í byggingaverkfræði með áherslu á byggingastjórnun og framkvæmdafræði. Áhugasvið Jóns beindist snemma að kostnaðarþáttum verkefna og hefur hann haft að leiðarljósi að auka gæði kostnaðaráætlana í framkvæmdaverkefnum með innleiðingu viðurkenndra alþjóðlegra staðla á þessu sviði.
Frá því að Jón Þór gekk til liðs við Hönnun (nú Mannvit hf.) árið 2006 hefur hann m.a. starfað við þróun verkefnastjórnunarkerfis Mannvits, MaPro, með kostnaðaráætlanir og stýringu kostnaðar sem sérsvið. Jafnhliða því hefur Jón Þór unnið við gerð kostnaðaráætlana fyrir fjölbreytt verkefni af ýmsum stærðum.












