Daði Ingólfsson
Daði Ingólfsson er með B.Sc. í tölvunarfræðum frá HR og hefur verið í hugbúnaðarbransanum í 11 ár. Í 7 ár var hann forritari í mörgum mismunandi "teymum" þar sem hann reyndi stöðugt að finna leiðir til að láta hugbúnaðarþróunina virka betur, bæði tækni- og stjórnunarlega. Árið 2007 söðlaði hann um og gerðist einn af eigendum Spretts (www.sprettur.is) þar sem hann, með félögum sínum, reynir stöðugt að finna leiðir til að hjálpa íslenska UT iðnaðinum að virka betur, bæði tækni- og stjórnunarlega. Frá því Daði kom til Spretts hefur hann þjálfað hátt í 30 teymi á Íslandi til betri árangurs og beitir við það Lean og Agile aðferðum. Á þeim tíma hefur hann lært mjög margt um hvað hópar fólks þurfa til að verða alvöru teymi.












