VSF
Verkefnastjórnunarfélag Íslands (VSF) var stofnað árið 1984 með það að markmiði að leiða þróun og eflingu verkefnastjórnunar á Íslandi. Félagið er hluti af IPMA sem eru alþjóðasamtök verkefnastjórnunarfélaga og vottar einstaklinga fyrir hönd samtakana hér á landi. Öllum vottuðum verkefnisstjórum er velkomið að gerast félagar í VSF. Í dag eru félagsmenn VSF um 500 talsins og fer fjölgandi með hverju ári.
Heimasíða félagsins er http://www.vsf.is/
Dagskrá og Skráning
Haustráðstefna
Verkefnastjórnunarfélag Íslands mun halda sína árlegu ráðstefnu fimmtudaginn 22. september næstkomandi kl.13:00-17:00 á 20.hæð í Turninum, Kópavogi. Yfirskrift ráðstefnunnar verður Verkefnateymið og kostnaðarstýring (Project Team Management & Cost Engineering). Stjórn VSF vinnur nú hörðum höndum að því að útbúa fjölbreytta og áhugaverða dagskrá. Nokkrir fyrirlesarar hafa þegar boðað komu sínu og má þá helst nefna:
- Thomas Rieckmann, Prof. Dr.-Ing. í Cologne University of Applied Sciences Institute for Chemical Engineering and Plant Design í Þýskalandi.
- Ko Des Bouvrie, eigandi Cost Engineering Consultancy and Information Services Consultant í Hollandi.
- Hafstein Bragason, M.A. í vinnu- og skipulagssálfræði, núverandi mannauðsstjóri hjá Íslandsbanka, fyrrum starfsmannastjóri Actavis og sérfræðingur hjá IMG (nú Capacent).
Dagskráin er nánast tilbúin og ljóst að margir spennandi fyrirlestrar verða í boði. Dagskrána má sjá hér og nánari upplýsingar um fyrirlesara má sjá hér.
Leit
Toppmynd


















